PERSPECTA

News from every angle

← All sources

RÚV

Iceland · 7066 articles

Center(0)
LeftCenterRight
ruv28m ago

Ástralir lögðu Tyrki 2–0

Ástralir lögðu Tyrki 2–0 í D-riðli á HM í fótbolta í nótt. Nestory Irankunda kom Áströlum yfir á 27. mínútu og Connor Metcalfe tryggði sigurinn með marki á 75. mínútu. Tyrkir voru mun meira með boltann í leiknum, eða 72% og áttu hvorki meira né minna en 30 tilraunir að marki Ástrala. Þeir gulklæddu vörðust hins vegar vel.

ruv2h ago

Knicks er NBA-meistari

New York Knicks er NBA-meistari í körfubolta í fyrsta sinn frá árinu 1973 eftir sigur á San Antonio Spurs í fimmta leik úrslitaeinvígisins í nótt, 94–90. Liðið tryggði sér þar með fjórða sigur sinn. Knicks-liðið var um tíma sextán stigum undir. Fyrir síðasta leikhlutann var liðið níu stigum undir. Jalen Brunson var allt í öllu hjá Knicks og skoraði 45 stig. Í leikslok var hann útnefndur leikmaður úrslitaeinvígisins (e. MVP). „Þetta er allt sem mig hefur dreymt um,“ sagði hann tárvotur í leik...

ruv3h ago

Hrina hákarlaárása í Ástralíu

Kona á fertugsaldri er í lífshættu eftir hákarlaárás á Cooge-ströndinni í Sydney í Ástralíu, einni af fjölsóttustu ströndum landsins. Aðrir gestir strandarinnar komu henni til bjargar. Lögregla segir að hún sé nú á spítala, enn í lífshættu. Stórum hluta strandarinnar og annarra nærliggjandi stranda var í kjölfarið lokað meðan lögregla og viðbragðsaðilar leituðu að hákarlinum, bæði úr þyrlu og af sjónum. Hákarlaárásir hafa alla tíð stefnt mönnum í hættu í Ástralíu. Frá árinu 1791 hafa 1.300 há...

ruv6h ago

Allt það helsta: Brasilía - Marokkó

Brasilía og Marokkó taka bæði eitt stig með í farteskið eftir 1-1 jafntefli. Marokkó byrjaði mun betur og komst yfir með frábærri afgreiðslu Saibari, en Brahim Díaz þræddi hann í gegn. Marokkó pressuðu Brassa stíft og réðu lögum og lofum næstu mínútur. Það kom gegn gangi leiksins þegar Vinicius Junior jafnaði metin með frábæru einstaklingsframtaki. Jafnt var í hálfleik, 1-1. Í seinni hálfleik voru Brassar ögn sterkari en ógnuðu þó aldrei af viti. Að lokum var lítið um opin marktækifæri í þess...

ruv8h ago

Spila golf fyrir góðan málstað á Palla Open

Palla Open golfmótið var haldið í sjötta sinn í dag og hefur mótinu vaxið fiskur um hrygg síðan það var haldið fyrst. Páll Örn Líndal segir hugmyndina að mótinu fyrst hafa kviknað á tímum covid. „Þegar við vorum að deyja úr leiðindum ákváðum við félagarnir að spila golfhring sem endaði með golfmóti sem á spiluðu 198 keppendur,“ segir hann. Mótið er haldið í samstarfi við Golfklúbb Mosfellsbæjar og er með þeim stærstu sem klúbburinn heldur. Allur ágóði af mótinu rennur til Sumarbúða Gló í Reyk...

ruv9h ago

Skjálfti að stærð 4,8 í Bárðarbungu

Jarðskjálfti að stærðinni 4,8 mældist í Bárðarbungu klukkan 20:14 í kvöld. Annar skjálfti að stærðinni 2,6 var skömmu áður, eða klukkan 20:10. Báðir skjálftarnir eru staðsettir í norðanverðri öskju Bárðarbungu á um 2-4 km dýpi. Um 20 eftirskjálftar hafa mælst. Skjálftar af þessari stærð mælast nokkuð reglulega í Bárðarbungu og var síðasti skjálfti um og yfir 5 að stærð 31. janúar síðastliðinn og mældist 5,4 að stærð. Myndin sýnir hvar upptök skjálftans átti sér stað.Veðurstofa Íslands

ruv11h ago

„Ég á börn sem lærðu orðið þjóðarmorð í æsku“

Það er reynt að fá fólk til að láta eins og ekkert sé á meðan þjóðarmorðið heldur áfram á Gaza, segir bresk-egypskur leikari og höfundur sem fjallar um heimsmálin í sýningu á Listahátíð Reykjavíkur. Khalid Abdalla er líklega þekktastur fyrir leik sinn í Flugdrekahlauparanum. Hann lék líka Dodi Fayed, kærasta Díönu prinsessu, í þáttunum The Crown. Nú sýnir hann einleikinn Nowhere eða Hvergi hér á Íslandi. „Oft erum við hvött til að segja okkar sögu sem einstaklingar sem komast áfram þrátt fyri...

ruv13h ago

Orban endurkjörinn formaður Fidesz

Viktor Orban, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, var endurkjörinn formaður flokks síns, Fidesz, í dag, um tveimur mánuðum eftir stórtap í þingkosningum sem bundu enda á 16 ára valdatíð hans. Orban, sem er 62 ára, hefur um árabil verið einn af merkisberum evrópskra harðlínuflokka af hægri vængnum. Samkvæmt frétt Reuters hafði myndast þrýstingur innan raða Fidesz um að hann ætti að þekkja sinn vitjunartíma, það varð þó lítið úr slíkum hugmyndum á flokksþingi í dag, þar sem 729 af 737 ...

ruv14h ago

Ný könnun: Fleiri ætla að kjósa já í ágúst

Fleiri eru hlynntir en andvígir því að fara í aðildarviðræður við ESB, samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem unnin var fyrir DV um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram 29. ágúst. Þar verður þjóðin spurð: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ og valmöguleikarnir verða „Já“ eða „Nei“. 53,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu í könnun Maskínu sögðust ætla að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni og 46,9 prósent ætla að kjósa nei. Ef litið er til allra svarenda sögðust 44,5 prósent ...

ruv14h ago

FH náði toppsætinu í Bestu deild

FH-ingar eru á miklu skriði.Mummi Lú FH skaust upp fyrir Breiðablik í Bestu deild kvenna og er með eins stigs forskot á þær grænklæddu eftir úrslit dagsins. FH konur unnu öruggan 5-2 sigur á Víkingum en Breiðablik tapaði á sama tíma gegn Stjörnunni, 1-3. FH hefur unnið fimm leiki í röð og er með 19 stig gegn 18 stigum Breiðabliks. Stjarnan er nú í þriðja sæti með 14 stig. Grindavík/Njarðvík vann Fram 2-0 og eru nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur nú í 6. sæti með 11 stig en Fram er í því níunda me...

ruv16h ago

Táningar grunaðir um morð á Jótlandi

Tveir ungir menn, 16 og 18 ára, eru í haldi lögreglu eftir að tvítugur maður fannst látinn í fljótinu Goðn, eða Gudenå, á Jótlandi í gær. Þeir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag, grunaðir um að hafa slegið tvítuga manninn, kyrkt hann og drekkt. Þeir neituðu að hafa drepið manninn en játuðu á sig grófa líkamsárás. Samkvæmt frétt DR þekktust mennirnir fyrir atvikið og hafði orðið sundurorða með ofangreindum afleiðingum. politiet.dk

ruv16h ago

Lifandi fjörudoppa fannst í fyrsta sinn á Íslandi

Fjörudoppu, tegund af kuðungi, rak nýlega á fjörur líffræðings í Gróttu á Seltjarnarnesi. Þetta er í fyrsta sinn sem slík finnst á lífi hér á landi. Fjörudoppa er kuðungur, náskyld þangdoppu og klettadoppu. Svanhildur Egilsdóttir, líffræðingur og ljósmyndari, var í óðaönn að undirbúa fjörudag í Gróttu og við leit að sjávarfangi til að sýna áhugasömum varð forvitnilegur kuðungur á vegi hennar. „Svo er ég að róta í þanginu og þá allt í einu dettur þessi kuðungur fyrir framan mig og ég kannaðist...

ruv17h ago

Ný innisundlaug á Akureyri opnuð í sumar

Ný innisundlaug í Sundlaug Akureyrar verður opnuð á næstu vikum, segir Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar. Nýja laugin er uppfærsla á gömlu innilauginni sem var um 70 ára gömul. Gísli segir allt tilbúið en nú þurfi bara að setja vatn í nýju laugina og prófa hana. Síðustu tvær vikur hafi staðið til að fylla laugina en sumarfrí iðnaðarmanna hafi tafið ferlið aðeins. „En þegar þetta er búið að taka tvö ár þá skipta vikur ekki miklu máli,“ segir Gísli. Framkvæmdirnar hafa gen...

ruv17h ago

Öflugur El Niño í uppsiglingu

El Niño er í uppsiglingu og stefnir í þetta veðurfyrirbæri verði einkar öflugt í ár. Það getur haft áhrif á hitafar, úrkomu og veðuröfgar víða um heim. El Niño lét síðast á sér kræla 2023 og 2024, það síðarnefnda er einmitt heitasta ár á jörðinni frá upphafi mælinga. Núna eru El Niño-skilyrði að þróast aftur í Kyrrahafi, samkvæmt nýrri greiningu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, með þeim afleiðingum að 2027 gæti orðið heitara en 2024. Veðurfyrirbærið El Niño er í uppsiglingu og stefnir í það ...

ruv18h ago

Löregla segir nokkur dyravarðafyrirtæki starfa án leyfis

Dyraverðir sem starfa án leyfis og réttinda á veitingastöðum hér á landi vinna oft fyrir fyrirtæki sem séu með dyraverði á mörgum stöðum, segir Heimir Ríkharðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Nokkur slík fyrirtæki starfi á landinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur veitinga- og skemmtistöðum í gærkvöld og nótt. Einum þeirra var lokað í samstarfi við Skattinn þar sem grunur var um skattalagabrot auk þess sem dyraverðir á staðnum voru ekki með starfsleyfi. Tveimur stöðum var lokað vegn...

ruv21h ago

Þurfum skóla sem skilur

Börn eru ekki á biðlistum að ástæðulausu. Þau eru þar vegna þess að það liggur fyrir að þau þurfa stuðning. Þau eiga ekki að bíða árum saman eftir úrræðum sem sem geta breytt lífi þeirra til hins betra. Eða jafnvel bjargað lífi þeirra. Starf kennara hefur breyst mjög mikið á undanförnum áratugum og það þarf að búa þá betur undir að takast á við þann fjölbreytta hóp sem þeir sinna daglega. Til þess þarf fleira fagfólk í skólana. Það er ekki nóg að fjölga stuðningsfulltrúum, sem hafa stundum en...

ruv22h ago

„Maður veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta – svo gerir maður bæði“

Til er sjoppa úti á landi sem nefnist Baunin og er uppáhaldsstaður unglinganna í bænum. Á þeim ímyndaða stað gerist útvarpsleikhúsið Baunin í leikstjórn Maríu Reyndal, verki sem nær allur ungleikarahópur landsins tekur þátt í. Leikritið gerist fyrir vestan í kringum aldamótin. Sveitaballamenningin er upp á sitt besta og rúnturinn stendur fyrir sínu en Baunin er hjartað, hún er ekki bara besta sjoppan heldur er þar líka djammað og slúðrað. Birta og Bergur hittast stundum í Bauninni. Þau eru sp...

ruv43m ago

Í dag: Þjóðverjar mæta til leiks gegn minnstu þjóðinni

Fótboltaveislan á heimsmeistaramóti karla í fótbolta heldur áfram með fjórum leikjum í dag. Þýskaland mætir Curacao í dag en Karíbahafsliðið sló met Íslands sem fámennasta þjóð í sögu mótsins. Þar búa tæplega 160.000 manns. Meira um Curacao og sögu þeirra má lesa hér að neðan. E-riðill og F-riðill hefjast. Stofan verður fyrir leik Hollands og Japan, og byrjar 19:30. Þá verður HM kvöld á dagskrá 22:05 þar sem farið verður yfir allt það helsta af mótinu. Dagskrá dagsins 17:00 - Þýskaland - Cur...

ruv3h ago

Fyrsti HM-sigur Skota í 36 ár

Skotar unnu 1–0 sigur á Haítí í C-riðli HM í fótbolta í nótt. Leikurinn var heldur bragðdaufur en eina markið kom á 28. mínútu þegar Skotinn John McGinn skoraði eftir skot innan úr teig. Boltinn hafði viðkomu í varnarmanni og breytti um stefnu eftir að markvörður Haítí hafði þegar skutlað sér í hitt hornið. Haítímenn voru sterkari í síðari hálfleik. Þegar um fimm mínútur voru eftir af leiknum var Frantzdy Pierro nálægt því að jafna metin með skalla, en boltinn fór rétt framhjá. Þetta var fyrs...

ruv4h ago

Ein kröftugasta hrinan í Bárðarbungu frá gosinu 2014

Veðurstofan hefur hækkað fluglitakóða fyrir Bárðarbungu upp í gulan. Þetta var gert skömmu fyrir klukkan eitt í nótt eftir mikla skjálftahrinu í norðanverðri öskju Bárðarbungu. Stærsti sjálfrinn var klukkan 20:14 í kvöld, eða 4,8 að stærð. Síðan þá hafa um 250 eftirskjálftar mælst, þar af ellefu yfir þremur að stærð. Enginn gosórói mælist þó. Síðast gaus úr eldstöðvakerfi Bárðarbungu sumarið 2014. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að hrinan nú sé ein sú kröftugasta frá eldsumbrotunum 201...

ruv6h ago

„Þú og einhverjir þrír í frumskógi í Brasilíu þekkja þetta“

Gio Reyna skoraði með frábæru utanfótarskoti fyrir Bandaríkin í 4-1 sigri gegn Paragvæ á HM. Arnar Gunnlaugsson fór yfir utanfótarskotin og nafnið trivela, sem er það sem slík skot eru kölluð víðs vegar í fótboltaheiminum. Restin af Stofunni kannaðist hins vegar alls ekki við orðið. Óskar Hrafn gerði góðlátlegt grín að Arnari en Arnar vildi sjá Óskar nota orðið í viðtali eftir leik með KR. Eins og svo oft áður er sjón sögu ríkari.

ruv8h ago

Landsréttur snýr nauðgunardómi héraðsdóms

Landsréttur hefur sýknað ungan mann sem sakfelldur var fyrir að nauðga þáverandi kærustu sinni af Héraðsdómi Reykjavíkur í október í fyrra. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa, þegar hann var tvítugur og hún nítján ára, haft samræði við þáverandi kærustu sína á meðan hún var sofandi og þar af leiðandi nauðgað henni þar sem hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga. Í dómi Landsréttar segir að maðurinn hafi staðfastlega neitað sök. Hann hafi skýrt svo frá að hann hafi átt samræði vi...

ruv10h ago

1150 ára afmæli Hrunamannahrepps fagnað

Forseta Íslands hefur aldrei verið boðið í eins gamalt afmæli eins og í dag en það var 1150 ára afmæli Hrunamannahrepps. Hátíðardagskrá var á Flúðum í tilefni dagsins þar sem forsetinn eignaðist meðal annars sundtösku með íslenska fánanum og risa grænmetiskörfu. Forseti Íslands sótti Hrunamannahrepp heim á afmæli sveitarfélagsins. Frú Halla Tómasdóttir og Björn maður hennar voru mætt á Flúðir um hálf tólf í morgun við Gömlu laugina þar sem þau fengu kynningu á lauginni og starfsemi hennar en ...

ruv11h ago

„Fyrir hverja starfa stjórnvöld?“

„Fyrir hverja er verið að fara þessa blönduðu leið? Fyrir hverja starfa stjórnvöld?“ spyr Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spilafíkn. Samtökunum var nýlega boðið til fundar með spretthópi dómsmálaráðherra um stefnumótun í málefnum fjárhættuspila. Þau mótmæla svokallaðri „blandaðri leið“ í opnu bréfi til dómsmálaráðherra. „Miðað við þær hugmyndir sem þau virðast vera að einblína á, þessa blönduðu leið, þá veltum við fyrir okkur fyrir hverja er verið að vinna þessa vinnu. Af...

ruv14h ago

Stjörnustríð sekkur dýpra og dýpra

Það verður að teljast óvanalegt að kvikmynd í Stjörnustríðsbálknum gangi illa í kvikmyndahúsum. Af þeim 50 kvikmyndum sem hafa verið söluhæstar í bíó eru fimm Stjörnustríðsmyndir, eða 10%. Upphaflega myndin var frumsýnd 1977 og varð hún söluhæsta kvikmynd allra tíma árið eftir. Fyrsta kvikmyndin í forþríleik Stjörnustríðs, The Phantom Menace, varð síðan næstsöluhæsta kvikmynd allra tíma árið 1999 á eftir Titanic. Þetta er ákveðið þema en fyrsta kvikmyndin í framhaldsþríleiknum, The Force Awak...

ruv14h ago

Ný könnun: Fleiri ætla að velja já í ágúst

Fleiri eru hlynntir en andvígir því að fara í aðildarviðræður við ESB, samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem unnin var fyrir DV um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fer fram 29. ágúst. Þar verður þjóðin spurð: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ og valmöguleikarnir verða „Já“ eða „Nei“. 53,1 prósent þeirra sem tóku afstöðu í könnun Maskínu sögðust ætla að velja kostinn já í þjóðaratkvæðagreiðslunni og 46,9 prósent ætla að velja nei. Ef litið er til allra svarenda sögðust 44,5 ...

ruv15h ago

Jarðböðin taka miklum breytingum

Framkvæmdir hafa staðið yfir við jarðböðin við Mývatn í nokkur ár og þau hafa verið lokuð síðan um áramót. Nú er farið að sjá fyrir endann á framkvæmdum og stefnt að því að opna 30. júní. Þar er núna nýtt þjónustuhús, ný búningaaðstaða og stærra lón. Breytingarnar hafa tekið langan tíma enda hefur gengið á ýmsu. Stór hellir fannst við framkvæmdirnar, um 12 metra djúpur og 105 metra langur. Vonir standa til að hægt verði að sýna ferðamönnum hellinn en hann er í friðlýsingarferli eins og er.

ruv16h ago

Ganversk stjórnvöld leita lausna fyrir Partey

Ganverska utanríkisráðuneytið hefur kallað eftir því að kanadísk stjórnvöld endurskoði ákvörðun sína að meina Thomas Partey inngöngu í landið. Partey er stjörnuleikmaður Ganverja og mun missa af fyrsta leik liðs síns á HM karla í fótbolta. Partey var neitað um inngöngu til Kanada en hefur fengið leyfi til að ferðast til Bandaríkjanna. Partey hefur verið ákærður fyrir alls sjö nauðganir. Honum var neitað um inngöngu til Kanada á grundvelli ákæranna. Utanríkisráðuneytið gaf út yfirlýsingu þar s...

ruv17h ago

Ný innisundlaug á Akureyri opnar í sumar

Ný innisundlaug í Sundlaug Akureyrar verður opnuð á næstu vikum, segir Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður sundlauga Akureyrar. Nýja laugin er uppfærsla á gömlu innilauginni sem var um 70 ára gömul. Gísli segir allt tilbúið en nú þurfi bara að setja vatn í nýju laugina og prófa hana. Síðustu tvær vikur hafi staðið til að fylla laugina en sumarfrí iðnaðarmanna hafi tafið ferlið aðeins. „En þegar þetta er búið að taka tvö ár þá skipta vikur ekki miklu máli,“ segir Gísli. Framkvæmdirnar hafa gen...

ruv18h ago

Líkur á að samningur verði fullkláraður á næsta sólarhringnum

Líkur eru á að Bandaríkin og Íran skrifi undir samning á næsta sólarhringnum, frá þessu greindi forsætisráðherra Pakistans nú skömmu fyrir fréttir. Ísraelsher hefur haldið áfram árásum á Líbanon í dag. Fimm hið minnsta hafa verið drepin í árásum Ísraela í Suður-Líbanon í morgun. Ísraelsher hefur í dag skipað íbúum tuttugu bæja og þorpa að flýja norður, yfir ána Zahrani. Talið er að Líbanon sé hluti af friðarsamningi Írans og Bandaríkjanna sem er sagður svo gott sem tilbúinn. Stjórnvöld í Paki...

ruv19h ago

Nafn Trumps fjarlægt af menningarmiðstöð

Nafn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta var fjarlægt af framhlið Kennedy Center í New York í nótt, hálfu ári eftir að forsetinn lét bæta sínu eigin nafni við nafn þessarar víðfrægu menningarstofnunar, sem stofnuð var í minningu Johns F. Kennedys forseta sem var ráðinn af dögum í nóvember 1963. Nafnabreytingin olli nokkrum úlfaþyt á sínum tíma en Trump skipaði sjálfan sig stjórnarformann miðstöðvarinnar eftir að hann tók aftur við embætti. Stjórnin samþykkti nýtt nafn, The Donald J. Trump and T...

ruv21h ago

Keyptu illa þefjandi skó á þúsundir dollara

Tónlistarbolir, peysur, húfur og aðrir munir sem eru merktir hljómsveitum og listamönnum hafa lengi verið þekktir en slíkur varningur hefur líklega aldrei verið mikilvægari en nú, segja umboðsmaður og almannatengill sem unnið hafa með fjölda hljómsveita í Evrópu og Bandaríkjunum. Þessa mátti til dæmis sjá merki fyrir stórtónleika Bubba Morthens um síðustu helgi. Þá var opnaður sérstakur vefur þar sem aðdáendur Bubba gátu valið úr peysum, tugum bola og aukahlutum á borð við derhúfur og sólgler...

ruv22h ago

Íslandsmethafi í hálfa öld

Á þessum degi fyrir hálfri öld bætti Þórdís Íslandsmet Láru Sveinsdóttur í hástökki um fjóra sentimetra þegar hún stökk 1,73 metra. Metið setti Þórdís á móti í Finnlandi 13. júní árið 1976. Þórdís var aðeins fimmtán ára á þessum tíma og Íslandsmetið hennar var jafnframt lágmark inn á Ólympíuleikana sem haldnir voru sama sumar í Montreal í Kanada. Þórdís átti svo á næstu 14 árum eftir að bæta Íslandsmet sitt átta sinnum í viðbót og alveg upp í 1,88 metra. Þetta síðasta Íslandsmet setti hún ári...

ruv56m ago

Mótmæla ferðatakmörkunum annarra ríkja

Stjórnvöld í Úganda gagnrýna ferðatakmarkanir sem Vesturlönd hafa innleitt vegna ebóluveirunnar, sem hefur borist yfir landamærin frá nágrannaríkinu Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Aðeins hafa nítján tilfelli ebólu greinst í Úganda frá því neyðarástandi var lýst yfir í nágrannaríkinu Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Þar af eru tveir látnir. Viðbrögð stjórnvalda hafa þótt góð. Thedros Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, hefur til að mynda hrósað þeim. Af tilfellunum nítján hafa l...

ruv3h ago

Fyrsti HM-sigur Skota í 36 ár

Skotar unnu 1–0 sigur á Haítí í C-riðli HM í fótbolta í nótt. Leikurinn var heldur bragðdaufur en eina markið kom á 28. mínútu þegar Skotinn John McGinn skoraði eftir að boltinn hafði viðkomu í varnarmanni og breytti um stefnu. Þetta var fyrsti leikur Skota á HM síðan í Frakklandi 1998. Þá var þetta fyrsti sigur landsins í leik á HM síðan á Ítalíu 1990. Sigurinn gæti reynst dýrmætur enda leika liðin í riðli með Brasilíu og Marokkó, sem sitja í 6. og 7. sæti heimslistans. Brasilía og Marokkó g...

ruv5h ago

Trump-fjölskyldan hagnaðist um milljarða á rafmyntum

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og synir hans hafa hagnast um 2,3 milljarða bandaríkjadala með sölu og markaðssetningu rafmynta frá því Trump var endurkjörinn í embætti forseta í nóvember 2024. Fjárfestar hafa hins vegar tapað álíka upphæð. Þetta leiðir greining fréttaveitunnar Reuters í ljós. Þar er sjónum beint að fjórum verkefnum þeirra feðga sem öll fylgja sömu formúlu. Trump-feðgar, einkum elstu synir hans tveir, hafa vakið áhuga á verkefnunum og laðað til sín fjárfesta með þeim afl...

ruv7h ago

Óboðlegur samningur um hjólhýsabyggð

Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að samningur Reykjavíkurborgar um hjólhýsabyggð í Gufunesi hafi verið „fullkomlega óboðlegur“ og ein af mörgum ákvörðunum sem síðasti meirihluti í borgarstjórn tók án skoðunar. Þetta segir Einar í viðtali við Vísi. Eitt fyrsta verk nýs meirihluta í borgarstjórn var að segja upp nýundirrituðum samningi Reykjavíkurborgar við Samtök hjólabúa, þar sem hópnum var veittur aðgangur að landsvæði í Gufunesi fyrir hjólhýsabyggð. Þangað átti ...

ruv9h ago

Allt það helsta: Sviss - Katar

Breel Embolo kom Sviss yfir í fyrri hálfleik með afar öruggri vítaspyrnu. Við það virtist eins og leikmenn Sviss héldu að stigið væri í höfn. Þeir höfðu mikla yfirburði en fóru í raun aldrei úr öðrum gír. Að lokum jafnaði Boualem Khoukhi með hörkuskalla. Katarar fögnuðu stiginu ógurlega. Stigið er sögulegt þar sem þetta er fyrsta stig liðsins í fjórðu tilraun, en liðið fór stigalaust frá HM á heimavelli í Katar árið 2022. Sviss getur engum öðrum en sér um kennt. Yfirburðirnir voru miklir en þ...

ruv10h ago

Umræðan um lagareldi mjög þung

Samkomulag um þinglok virðist svo gott sem í höfn, en enn eru nokkur mál sem standa þar í vegi. Meðal annars frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi, sem ólíklegt er að takist að klára á þessu þingi. „Ég held að það væri mjög sorglegt ef við gætum ekki afgreitt það en ég skal ekki draga neina fjöður yfir það að umræðan um þetta mál hefur verið mjög þung,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar. Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, segir það óheppilegt að e...

ruv12h ago

Trump segist munu skrifa undir friðarsáttmála á morgun

Enn og aftur hillir undir friðarsamninga milli Bandaríkjanna og Írans. Lítið hefur þó ræst úr svipuðum yfirlýsingum síðustu daga og vikur. Afar misvísandi fregnir hafa borist frá Washington og Tehran að undanförnu, hvort samningar séu í sjónmáli og hvað felist þá í þeim. Einhver kaflaskil urðu í gær eftir að forsætisráðherra Pakistans, Shehbaz Sharif, sem hefur haft milligöngu í samskiptum ríkjanna, sagði lokasamningsdrög liggja fyrir. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði svo fyrir stuttu á ...

ruv14h ago

Mjög mikill eldur en allir heilir eftir eldsvoða á hafi

„Þetta var mjög mikill eldur á mjög skömmum tíma og mikill reykur sem barst um skipið,“ segir Theodór Elvar Haraldsson, skipstjóri á Barða. Eldur kom upp í vélarrúmi skipsins undan ströndum Færeyja í gær með fimm manns um borð. Theodór útskýrir að skipið hafi verið í vélarupptekt í Þórshöfn. „Við vorum búnir að fara í fyrradag í prufusiglingu þar sem allt reyndist í góðu lagi.“ Skipið lagði af stað heim til Íslands í gær og hafði siglt í um fjóra tíma þegar áhöfnin varð vör við eld í vélarrúm...

ruv15h ago

Rafmagni komið aftur á kjarnorkuverið í Zaporizhzhia

Kjarnorkuverið í Zaporizhzhia, sem Rússar lögðu undir sig í innrásinni í Úkraínu 2022, er komið aftur inn á raforkunet Úkraínu, þremur dögum eftir að það datt út eftir árás Rússa. Viðgerðarmenn komust að verinu eftir að tímabundnu vopnahléi var komið á á svæðinu, að því er Alþjóða kjarnorkumálastofnunin segir í tilkynningu. Verið gekk á meðan á dísilknúnum rafstöðvum til að kæla kjarnakljúfana. Engrar aukinnar geislunar hefur orðið vart í nágrenni versins. Zaporizhzhia liggur á víglínunni mi...

ruv16h ago

Beckham kominn með Hollywood-stjörnu

Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham fékk í gær nafn sitt grafið á stjörnu á frægðargötunni í Hollywood. Stjörnuna fékk hann fyrir að eiga þátt í að auka veg og virðingu fótbolta í Bandaríkjunum. Beckham stofnaði bandaríska liðið Inter Miami árið 2018 og fimm árum síðar tók hann þátt í að semja við einn besta knattspyrnumann heims, Lionel Messi. Stjarna Beckhams er númer 2.849 í röðinni. David Beckham er kominn með sína eigin stjörnu í frægðargötunni í Hollywood. Stjörnuna fékk hann fyrir...

ruv17h ago

„Staðan er öfug við það sem Ragnar Þór er að segja“

Bjarni Benediktsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir stöðuna öfuga við það sem Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hélt fram í gær. Fyrirtækin segir hann að séu ekki meginorsakavaldur efnahagsástandsins. Ragnar Þór skoraði í gær á fyrirtæki að frysta eða jafnvel lækka verð áður en endurskoðunarákvæði kjarasamninga virkjast í haust. Kjarasamningar sem gerðir voru 2024 höfðu það að markmiði að lækka vexti og verðbólgu en ráðherra sagði að sér fyndist fátt benda til þe...

ruv18h ago

Lögregla segir nokkur dyravarðafyrirtæki starfa án leyfis

Dyraverðir sem starfa án leyfis og réttinda á veitingastöðum hér á landi vinna oft fyrir fyrirtæki sem séu með dyraverði á mörgum stöðum, segir Heimir Ríkharðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Nokkur slík fyrirtæki starfi á landinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur veitinga- og skemmtistöðum í gærkvöld og nótt. Einum þeirra var lokað í samstarfi við Skattinn þar sem grunur var um skattalagabrot auk þess sem dyraverðir á staðnum voru ekki með starfsleyfi. Tveimur stöðum var lokað vegn...

ruv19h ago

Jón Þór tekur við Stjörnunni

Knattspyrnudeild Stjörnunnar tilkynnti nú í morgun að Jón Þór Hauksson tæki við karlaliði félagsins. Í gær yfirgaf Jökull Elísabetarson liðið. Síðasta aðalþjálfarastarf Jóns Þórs var hjá ÍA en hann var rekinn síðasta sumar. Hann hefur verið í þjálfarateymi Vestra síðan, félagi sem hann þjálfaði áður. Þá var hann þjálfari íslenska kvennalandsliðsins frá 2018 til 2020. Hann þekkir vel til hjá Stjörnunni, hann starfaði áður hjá félaginu og meðal annars sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. ...

ruv22h ago

Lítið grisjað í frumskógi bílastæðaappa

Potturinn er brotinn í innheimtu bílastæðamála, sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í viðtali við RÚV í ágúst 2025. Afleiðingin væri frumskógur fyrir neytendur sem ættu erfitt með að átta sig á hvar og hvernig hægt væri að greiða. Skerpa þyrfti á upplýsingagjöf og setja ramma um innheimtu. „Neytandinn þarf að vita hvert verðið er fyrir fram, hver þjónustugjöld eru og hver möguleg vanskilagjöld eru, hvenær þau falla og hvernig á að greiða þetta. Og það er pottur brotinn, möguleg...

ruv23h ago

Hætta öllum innflutningi á rússneskri olíu ekki seinna en um áramót

Breska ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að banna innflutning á dísilolíu og flugvélaeldsneyti sem unnið er úr rússneskri hráolíu fyrir 1. janúar 2027. Bannið er hluti af þvingunaraðgerðum sem breska ríkisstjórnin beitir stjórnvöld í Rússlandi vegna innrásarstríðsins í Úkraínu. Í maí greindi breska ríkisstjórnin frá því að til stæði að fasa eldsneyti sem unnið er úr rússneskri hráolíu í olíuhreinsistöðvum utan Rússlands. Það yrði gert í skrefum og að aðgerðirnar þyrftu að bjóða upp á sv...